sól að lesa

Sögur, söngur og skrímsli í sumargjöf

Lesum saman í sumar!

Notið tímann í sumarbústaðnum, í bílnum og á rigngingardögum til að lesa fyrir eða með barninu. Hjá Forlaginu er að finna fjölbreytt úrval af bókum handa krökkum á öllum aldri. Sniðugt er að lauma fallegri barnabók með í sumarpakkann og gleyma ekki lestrinum í sumarfríinu.

Nýlega var endurprentuð hin dásamlega Stór skrímsli gráta ekki , en sýningin Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu hefur gengið fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu síðustu mánuðina. Einnig er söngvasafnið Ef væri ég söngvari nýkomið úr endurprentun þar sem er að finna 120 kvæði sem öll fjölskyldan getur sungið saman.

Klassískar barnabækur eins og bækurnar um Einar Áskel og vinina Emmu og Tuma standa einnig alltaf fyrir sínu.

Fyrir eldri krakka og unglinga koma bækur eins og Hungurleikarnir og Ríólítreglan sterkar inn, svo ekki sé minnst á Víti í Vestmannaeyjum fyrir alla fótboltakrakkana sem eru á leiðinni á fjörug fótboltamót í sumar.

Njótið lestrarsumarsins!

INNskráning

Nýskráning