Sólveig Pálsdóttir

Sögur á siglingu

Glæpasögur Sólveigar Pálsdóttur, Leikarinn sem kom út í fyrra og nýja bókin Hinir réttlátu, eru spennusagnir lóðbeint úr íslenskum samtíma. Sögur af fólki og aðstæðum sem við könnumst mörg við. Í nýlegum dómi skrifar Hrund Hauksdóttir að höfundi takist vel að draga upp kómíska en jafnframt hárnákvæma mynd af íslensku samfélagi en það var að mati kollega hennar í ritrýnistétt líka styrkur fyrri bókarinnar. Þessi sannferðuga sýn virðist höfða vel til lesenda spennusagna því báðar bækurnar eru nú á blússandi sumarsiglingu. Þar sannast máski að sækjast sér um líkir.





INNskráning

Nýskráning