Kristín Helga og Einar Már

Sögugöngur í Garðabæ

Á vordögum verður boðið í sögugöngur í kringum Garðabæ og Vífilstaði og um leið fjallað um bækur þar sem sögusviðið er Garðabær og nágrenni.

Laugardaginn 5. maí verður gengið með Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um sögusvið bókanna um Binnu og Móa hrekkjusvín. Kristín Helga segir frá tilurð bókanna og skoðar Garðahreppinn sem breyttist í bæ. Einnig verður spjallað um úthverfabarnið út frá veröld Fíusólar. Þetta er hugsað sem fjölskylduganga sem bæði börn og fullorðnir geta tekið þátt í og haft gaman af. Lagt verður af stað frá bókasafni Garðabækjar kl. 11.

Þriðjudaginn 8. maí verður farið í göngu með Einari Má Guðmundssyni rithöfundi um Vífilstaði. Í sögugöngunni mun Einar fjalla um tilurð og sögusvið bókar sinnar Draumar á Jörðu sem gerist að miklu leyti á Vífilsstöðum. Lagt verður af stað frá bókasafninu kl. 16:30.

Nánari upplýsingar á vef bókasafns Garðabæjar.

INNskráning

Nýskráning