Sofi Oksanen hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Finnska skáldkonan Sofi Oksanen hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010. Verðlaunin hlýtur hún fyrir þriðju bók sína Hreinsun sem kemur út í íslenskri þýðingu Sigurðar Karlssonar hjá Máli og menningu í haust. Oksanen hefur þegar sópað til sín fjölda annarra verðlauna og er af mörgum talin einn áhugaverðasti rithöfundur sinnar kynslóðar.

Hreinsun gerist í Eistlandi á tveimur tímaskeiðum, um 1940 og 1990, og segir sögu tveggja kvenna af ólíkum kynslóðum. Þær kynnast þegar sú yngri, Zara, flýr undan ofbeldisfullum melludólgi á náðir þeirrar eldri, Aliidu Truu, sem býr í afskekktri sveit. Zara er illa skemmd af óblíðri reynslu sem ánauðug vændiskona í Þýskalandi, og Aliida á sjálf skuggalega fortíð því hún sveik það sem henni var heilagast þegar Rússar lögðu Eistland undir sig árið 1940. Smám saman koma í ljós óvænt tengsl milli þessara tveggja ólíku kvenna, tilfinningaleg og söguleg …

Hreinsun var upprunalega leikrit, enda er Sofi leikhúsfræðingur að mennt, en persónurnar héldu áfram að trufla höfundinn þangað til þær höfðu fengið inni í skáldsögu. Þjóðleikhúsið hefur tryggt sér sýningaréttinn á leikritinu.

Verðlaunin verða afhent Oksanen í Reykjavík í nóvember, í tengslum við fund Norðurlandaráðs.

INNskráning

Nýskráning