Sofi Oksanen

Sofi Oksanen gerir það gott

Metsölubók Sofi Oksanen, Hreinsun, sem gagnrýnendur hér heima og erlendis hafa lofað í hásert, hefur nú selst í hálfri milljón eintaka á heimsvísu. Samkvæmt nýjustu upplýsingum okkar hefur útgáfuréttur hennar verið seldur til 38 landa, sem þykir dágott. Leikritið sem skáldsagan byggir á verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á næsta leikári en það fór á fjalirnar í New York fyrir nokkurm dögum.

Von er á annarri bók úr smiðju Oksanen á íslensku innan skamms; Kýr Stalíns heitir sú á frummálinu en hún kom nýverið út í Danmörku og fékk þar fullt hús hjá fjórum af stærri dagblöðum þeirra frænda okkar. Lesendur eiga því von á góðu.

INNskráning

Nýskráning