Sofi Oksanen

Sofi Oksanen fær „litla Nóbelinn“

Sænska akademían hefur tilkynnt að finnski rithöfundurinn Sofi Oksanen hljóti í ár Norrænu bókmenntaverðlaunin sem Sænska akademían veitir. Hún er þriðja konan sem fær þessi verðlaun og sennilega yngst allra verðlaunahafa, fædd 1977. Verðlaunin nema 350.000 sænskum krónum og þau verða afhent við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi 10. apríl næstkomandi.

Sofi varð heimsþekkt fyrir þriðju skáldsögu sína, Hreinsun, sem fékk öll hugsanleg bókmenntaverðlaun í heimalandinu, Finnlandi, og ýmis erlend verðlaun og viðurkenningar, m.a. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og bæði FNAC verðlaunin frönsku og Prix Femina. Hreinsun kom út hér á landi 2010 við gríðarlegar vinsældir. Forlagið gaf svo út fyrstu bók hennar, Kýr Stalíns, ári seinna, en hún fór ekki eins hátt þótt athyglisverð sé. Nýjasta skáldsaga Sofi kom út í Finnlandi sl. haust og heitir Þegar dúfurnar hurfu. Hún er væntanleg á íslensku á næsta ári.

Norræn bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar hafa verið veitt árlega frá 1986. Þau þykja einhver mesti heiður sem norrænum rithöfundi getur hlotnast og eru gjarnan nefnd norrænu Nóbelsverðlaunin eða „litli Nóbelinn“. Núverandi handhafi þeirra er Einar Már Guðmundsson sem var þriðji Íslendingurinn sem hlaut verðlaunin, Thor Vilhjálmsson fékk þau árið 1992 og Guðbergur Bergsson árið 2004.

INNskráning

Nýskráning