Tryggðarpantur, skáldsaga Auðar Jónsdóttur, hittir frændur vora Dani heldur hressilega fyrir ef marka má gagnrýni dönsku blaðanna sem keppast nú við að fjalla um bókina. Það er ekki að undra að Danir taki verkið til sín enda skrifaði Auður söguna sem ákveðna speglun á þjóðmálaumræðu í Danmörku sem m.a. tengist hinum umdeildu Múhameðsteikningum í Jótlandspóstinum.
Gagnrýnandi fríblaðsins Metro Express gefur bókinni fimm stjörnur og líkir henni við ekki ómerkara verk en Dýrabæ George Orwells. Kollegi hans á Literatursiden er einnig snortinn og segir m.a. að lesandinn fái marbletti á samviskuna við að lesa beitta og afhjúpandi sögu Auðar sem fer að hans sögn „… beint í kjötið á sýktustu svæðunum í sálarlífi vestræns nútíma.“ Báðir gagnrýnendur taka fram hversu auðvelt þeir eiga með að samsama sig aðalsöguhetju bókarinnar – þó ekki sé hún kræsileg. Gagnrýnandi Weekendavisen segir bókina síðan hreinlega hættulega þó hann hrósi henni sem margslunginni skáldsögu og biðji fólk um að láta kápuna ekki hræða sig.
Tryggðarpantur kemur verst við kaunin á gagnrýnanda Politiken. Sá sárreiðasti er ósammála lofi starfsbræðra sinna og fer fremur hvössum klóm um bók Auðar og áfellist höfundinn fyrir að vera búinn að sleppa „hinu jarðbundna akkeri Íslendingsins“.
Forkólfar danskra bókasafna eru hins vegar lítt uppteknir af slíkum landhelgismálum og mæla óspart með Tryggðarpanti fyrir sína lesendur og tilgreina hana sem eina af sérstaklega góðum bókum á nýliðnu ári.
Tryggðarpantur kom út hjá Máli og menningu árið 2006 og var bókin m.a. tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.