Snabba Cash / Fundið fé í bíó

Spennusagan Fundið fé eftir sænska krimmakrónprinsinn Jens Lapidus er á leiðinni í bíó. Fróðir menn og konur sem séð hafa ræmuna Snabba Cash bera henni vel söguna – enda eru þarlendir engir aukvisar í gerð flottra spennumynda. Sögusviðið eru undirheimar Stokkhólms þar sem þrír ólíkir glæpamenn eru allir að reyna að komast áfram – og halda lífi.  Jorge er dópsali sem sleppur úr fangelsi á ævintýralegan hátt og ætlar að forða sér úr landi en þarf fyrst að negla þá sem komu honum í steininn, JW er strákurinn sem selur yfirstéttarliðinu kókaín á flottustu klúbbunum til að fjármagna tvöfalt líf sitt og Mrado er serbneskur mafíuhandrukkari sem misþyrmir og drepur án samviskubits en lætur sig dreyma um hamingjusama tilveru með ungri dóttur sinni. Sumsé, dágóður kokteill af hasar og fjöri frá frændum vorum kemur í bíóhúsin miðvikudaginn 19. maí.


Úr dómum um myndina:


„Snabba Cash rennir stoðum undir þá staðreynd að Svíar eru að verða stórveldi í glæpamyndagerð. Virkilega smart krimmi þar sem kynnt er hægt og rólega undir áhugaverðum persónum þangað til allt sýður upp úr.“
*** ½ (stjarna)
ÞÞ/ Fréttablaðið

„Það er auðvelt að mæla með þessari spennandi og tilfinningaríku mynd því að hún veit svo sannarlega hvar hún stendur – og gerir allt sem hún ætlar sér.“
B.I. kvikmyndir.com

„Ofursvöl Scarface Norðurlanda“
**** ( stjörnur)

Ómar Eyþórsson X-ið977

„Snabba Cash gefur Stig Larsson myndunum ekkert eftir. Áhrifarík og raunveruleg.“
****

Heiðar Austmann FM957


Hér má sjá kynningarstiklu myndarinnar:

httpv://www.youtube.com/watch?v=TfHkGBywm_I

INNskráning

Nýskráning