Meistaraverkið og fleiri sögur, fyrsta smásagnasafn Ólafs Gunnarssonar, hefur fengið frábærar viðtökur og hefur það nú verið sent í endurprentun.
Í smásögunum leikur Ólafur á ýmsa strengi og hefur verið talað um það í dómum að smásagnaformið „leiki í höndunum á honum“ eins og Kolbrún Bergþórsdóttir orðaði það. Ennfremur er talað um í dómum að sögurnar einkennist af fallegum og manneskjum tón , að Ólafur nái í senn að skapa spennu, hroll, hlátur og veki lesendur til umhugsunar.
Ólafur Gunnarsson hefur hingað til verið þekktur fyrir þykka doðranta sína en hefur sýnt og sannað með smásagnasafni sínu að hann er einnig meistari fárra orða.