Erótíkin á upp á pallborðið nú um stundir. Við birtum hér brot úr væntanlegri bók, L.E.Y.N.D, sem án efa mun kveikja í aðdáendum náttborðs- og blúndubókmennta:
L.E.Y.N.D eftir L. Marie Adeline hefur vakið heimsathygli. Sagan fjallar um þjónustustúlkuna Cassie sem dag einn rekst á dularfulla minnisbók. Það litla sem Cassie les í bókinni kitlar og hneykslar og kemur henni að lokum í samband við L.E.Y.N.D., leynisamtök í New Orleans sem hjálpa konum að raungera erótískar fantasíur sínar og verða kynferðislega lifandi. Fyrr en varir er Cassie komin af stað í tíu skrefa ferli samtakanna þar sem hver fantasían rekur aðra og hver folinn af öðrum fullnægir öllum hennar þörfum – jafnvel þeim sem hún hafði ekki hugmynd um að hún byggi yfir…
L.E.Y.N.D er væntanleg í bókaverslanir eftir helgina