Skýrslan komin aftur

Við minnum á að rannsóknarskýrslan er nú fáanleg í bókaverslunum að nýju. Endurprentun hennar skilaði sér úr vélunum um helgina svo nú bíður hún glóðvolg í hillum bókabúðanna eftir þeim lesendum sem gripu í tómt fyrir helgi. Nú þegar margir hafa haft tækifæri til þess að glugga í skýrsluna og er það mál manna að hún sé bæði vönduð og aðgengileg en varla neinn skemmtilestur. Hins vegar er þetta klárlega útgáfa sem á erindi við alla landsmenn.

INNskráning

Nýskráning