Gréta Sörensen

Skyldueign prjónaáhugafólks

Prjónabiblían er yfirgripsmikil handbók alls prjónaáhugafólks, hvort heldur sem er byrjendum eða snillingum.

Í fyrri hluta bókarinnar er farið ítarlega yfir öll grunnatriði í prjóni, tækni og handbragði við hvers konar prjónaskap, einfaldan og flókinn, er vandlega lýst, hugtök útskýrð. Í síðari hlutanum eru eitt hundrað útprjónsmunstur sem ættu að geta orðið öllu prjónaáhugafólki óþrjótandi brunnur hugmynda til að hanna og skapa eigin útfærslur.

Fjöldi fallegra ljós- og skýringamynda prýða bókina og gera hana að eigulegum grip fyrir alla þá sem hafa ánægju af því að prjóna.

INNskráning

Nýskráning