Ný skáldsaga Arnalds Indriðasonar, Skuggasund, kemur út þann 1. nóvember næstkomandi en Arnaldur hefur fyrir löngu eignað sér daginn til útgáfu verka sinna.
Skuggasund er sautjánda bók Arnaldar Indriðasonar en í henni fetar hann ótroðnar slóðir í fylgd nýrra sögupersóna; annars vegar í samtímanum og hins vegar á árum síðari heimsstyrjaldar. Arnaldur hefur um langt skeið notið gríðarlegrar hylli lesenda og gagnrýnenda heima og erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar á tugi tungumála, selst í milljónum eintaka og aflað höfundinum verðlauna og virðingar víða um lönd. Sem dæmi má nefna að The Sunday Times útnefndi hann einn besta glæpasagnahöfund samtímans!
Skuggasund hefur nú þegar hlotið virt alþjóðleg bókmenntaverðlaun: hin spænsku PREMIO RBA DE NOVELA NEGRA 2013 sem veitt eru fyrir óútgefna glæpasögu og var sagan valin úr hátt í tvö hundruð handritum frá ýmsum löndum. Bókin kemur samtímis út á spænsku og íslensku.
Það er því ljóst að Arnaldur hefur aldrei verið betri og ekki seinna vænna að byrja að láta sig hlakka til!