Skuggasund hrífur

Nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, Skuggasund,  stimplar sig rækilega inn hjá lesendum. Hún þaut beint inn á lista yfir vinsælustu bækur landins á uppsöfnuðum metsölulista Félags bókaútgefenda fyrir bækur sem komið hafa út frá ágústbyrjun – þrátt fyrir að hafa þá aðeins verið í sölu í þrjá daga þegar listinn var tekinn saman. Umsagnir og dómar um hana hafa verið mjög lofsamlegir, hún fékk til að mynda fjórar skínandi stjörnur í Fréttablaðinu í dag. Dómar um bókina í spænskum fjölmiðlum hafa líka verið hreint dúndurgóðir og sumir býsna litríkir málfarslega, þannig segir rýnirinn Marka Nelken í El Mundo að höfundurinn sé „eigandi fokking bókmenntasenunnar“ og heldur áfram:

„RBA hefur kynnt fyrir okkur bestu norrænu rithöfunda nútímans semvið kunnum þeim þakkir fyrir. Og fremstur allra er þessi Arnaldur Indriðason sem er einhverskonar kokteill af Dennis Lehane, með slatta af Elmore Leonard og nokkrum dropum af Michael Conelly, í boði sjálfs Capitán Pescanova . ‘On the rocks’, eins og allt sem kemur frá Reykjavík, en með þessari hlýju sem einkennir gamla vini.“



INNskráning

Nýskráning