Skrímslahöfundar

Skrímsli í Madríd

„Skrímslahöfundarnir“ okkar Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal eru nýkomin heim frá Spáni þar sem þau sóttu heim bókakaupstefnu í Madríd. Norðurlöndin eru heiðursgestur sýningarinnar að þessu sinni og vildu skipuleggjendur gera barnabókmenntum sérstaklega hátt undir höfði. Þremenningunum var því boðið til Madrid þar sem þau kynntu skrímslabækurnar sínar fyrir húsfylli, árituðu þær í sölubási Norðurlandanna og héldu tvær teiknismiðjur fyrir börnin. Teiknismiðjunar slógu eftirminnilega í gegn, mætingin var afbragðsgóð og þar fæddust ófá dásamleg skrímsli.

Stórblaðið El Pais ræddi við Áslaugu og félaga og birtist viðtalið nú fyrir skömmu. Þar ræddu þau meðal annars um óvenjulega vinnuaðferðir sínar en þremenningarnir skrifa og teikna hvert í sínu landi, Áslaug á Íslandi, Rakel í Færeyjum og Kalle í Svíþjóð. Samskiptin fara þá fram með hundruðum tölvuskeyta en einu sinni á ári hittast þau til að bera saman útkomuna og vinna að lokagerð hverrar bókar. Að meðaltali tekur það þau þrjú ár að vinna hverja bók. „Þetta tekur langan tíma en útkoman er góð. Sérhvert okkar leggur til hugmynd sem við svo ræðum í gegn um tölvupóst og það gefur tilefni til mikilla umræðna“.  Það má ekki gleyma því að textarnir eru skrifaðir á þremur mismunandi tungumálum.

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

INNskráning

Nýskráning