Sjáir þú krítarhvítan einstakling tilsýndar, til dæmis skjótast um með bunka af A4-blöðum undir hendinni, þá eru nokkrar líkur á að þar fari rithöfundur ellegar þýðandi. Það er engin miskunn hjá Manga og þar af leiðandi lítið sumarfrí. Jólabækurnar skrifa sig ekki sjálfar. Nú eru margir að leggja lokahönd á handritin svo ef þið hittið höfundana okkar á förnum vegum þá endilega klappið þeim á bakið og hvetjið þá á lokasprettinum.