Við vekjum athygli skotveiðiáhugafólks á nýrri og uppfærðri útgáfu af lykilriti skotveiðimannsins, Veiðum á villtum fuglum og spendýrum, sem nú er komin í verslanir. Meginmarkmið hennar er tvíþætt, annars vegar að efla þekkingu hins almenna skotveiðimanns á veiðum og bráð og hins vegar að safna saman í eina bók öllu því sem veiðimönnum ber að kunna til að standast hæfnipróf.