Nýlega kom bók Stefáns Mána, Skipið, út í Ástralíu. Það eru alltaf stórtíðindi þegar íslenskar bækur eru gefnar út í enskri þýðingu enda erfitt að koma verkum að á svo stórum markaði. Bækur Stefáns Mána hafa fengið mikla athygli undanfarið, bæði erlendis og ekki síður hér heima, en þessa dagana flykkjast landsmenn í kvikmyndahúsin til að sjá myndina Svartur á leik sem byggð er á samnefndri bók Stefáns Mána.