Stefán Máni

Skipið glæpasaga ársins í Frakklandi

Franska menningartímaritið Lire valdi nýlega spennutrylli Stefáns Mána, Skipið, sem glæpasögu ársins 2010 og bókin er nú á leið í fjórðu prentun hjá frönskum forleggjara Stefáns. „Frakkar eru miklir smekkmenn og sjálfur er ég mikill aðdáandi franskrar menningar. Frakkar virðast alveg skilja hvað ég er að hugsa og hvað ég er að meina, það ríkir gagnkvæmur skilningur okkar á milli,“ sagði Stefán í spjalli við Fréttablaðið á dögunum. Smelltu hér til að lesa viðtalið.

INNskráning

Nýskráning