Skáldsaga Hallgríms Helgasonar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, var valinn skemmtilegasti bókartitill ársins í Þýskalandi. Eins og við greindum frá á síðunni fyrir skömmu var hörð keppni í netkosningu um þessa upphefð en svo fór að bók Hallgríms var ein þeirra sex sem komust áfram í keppninni. Dómnefnd skar svo úr um úrslitin og voru þau kunngerð á bókamessunni í Frankfurt í gær.
Á þýsku heitir bókin „Zehn Tipps, das Morden zu beenden und den Abwasch zu beginnen“ og hefur hún þegar fengið frábærar viðtökur þar í landi. Dómar um bókin hafa verið lofsamlegir og hún hefur verið prentuð í þremur upplögum. Verðlaunin munu án efa verða til þess að fleiri veita henni athygli.