Kolbrún Bergþórsdóttir og Friðrika Benónýsdóttir voru hjartanlega sammála um það í Kiljunni í gærkvöldi að skáldsaga Braga Ólafssonar, Fjarveran, væri mjög vel heppnuð og skemmtileg bók.
„Hann er óstjórnlega fyndinn höfundur,“ sagði Kolbrún og Friðrika tók undir það og bætti um betur: „Þetta er skemmtilegasta bókin sem ég hef lesið á þessari vertíð, ég hló bara eins og vitleysingur.“ Egill Helgason tók undir með þeim stöllum svo úr varð fagur lofsöngur sem gladdi aðdáendur Braga innilega.