Það er ekki að spyrja að Skúla skelfi! Vinsældir þessa óþekktarorms vaxa með hverju árinu og nú geta aðdáendur hans byrjað að hlakka til fyrstu bíómyndarinnar um Skúla. Þegar er búið að gera teiknimyndaþáttaröð, leikrit og ýmislegt fleira með Skúla en myndin, sem verður auðvitað í þrívídd eins og mjög er móðins nú, verður af allt annari stærðargráðu. Hún verður aukinheldur fyrsta breska myndin sem gerð er í 3D. Við fylgjumst spennt með framhaldinu því þetta verður án efa alveg skelfilega skemmtileg mynd.