Næstkomandi laugardag, 5. nóvember, verður efnt til málþings í Listasafni Íslands í tilefni af útgáfu Íslenskrar listasögu frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Með því er ætlunin að skapa vettvang fyrir umræðu um efni bókanna, hlutverk og gildi í samtímanum og gefa lesendum tækifæri til að varpa fram spurningum sem kunna að hafa vaknað við lestur bókanna.
Frummælendur verða Ólafur Kvaran ritstjóri, Halldór Björn Runólfsson safnstjóri, Eiríkur Þorláksson listfræðingur, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Hrafnhildur Sigurðardóttir formaður SÍM, Páll Baldvin Baldvinsson gagnrýnandi, Jón Proppé listheimspekingur og Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður. Fundarstjóri verður Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir listheimspekingur.
Hefst málþingið kl. 11, er aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Sjá nánar á vef Listasafns Íslands.