Franskir útgefendur slógust um skáldsögu Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Skaparann, á þarlendu uppboði. Fór svo að forlagið Autrement átti hæsta boðið í útgáfuréttinn en það er virt forlag sem meðal annars gefur út verk Josephs Conrad, Margretar Atwood og Tarjei Vesaas. Autrement tilheyrir Flammarion samsteypunni sem er fjórða stærsta útgáfufyrirtæki í Frakklandi. Ráðgert er að franska útgáfan komi út í október 2012. Mikill hugur er í frammámönnum Autrement að gera veg hennar sem mestan og segir talskona þeirra, Emmanuelle Vial, að það verði „heiður að kynna svo sterka rödd“ fyrir frönskum lesendum.
Skáldsagan Skaparinn var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2009 og hefur þegar verið gefin út í Þýskalandi, Bandaríkjunum, Bretlandi og á Ítalíu. Allra nýjast útgáfan ber þó titilinn Nukentekijä en heiðurinn að henni á finnska forlagið Atena.