Martröð millanna

Skáldskapur og veruleiki

Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Óskar Hrafn Þorvaldsson sendir frá sér bókina Martröð millanna fyrir jólin. Þetta er hröð og harðsoðin spennusaga, beint úr íslensku andrúmslofti rétt fyrir hrun. Í viðtali á Pressunni segir Óskar Hrafn frá tilurð bókarinnar og þeim veruleika sem hún er sprottin úr. Hann segir meðal annars:

„Sagan er  auðvitað skáldskapur en  það verður ekki hægt að útiloka að einhverjir komi til með að sjá atburði eða þekki sjálfan sig fyrir í þeim aðstæðum sem fyrir koma.  Ekki skal ég segja hverjir það ættu að vera eða  hvaða atburði það á við. Raunveruleikinn er ef til vill ekki langt undan en gerist eitthvað slíkt er það  ekki viljaverk.  Frásögnin getur að öllum líkindum  gefið  fólki einhverja mynd af þeim  heimi  sem við lifðum á þessu tímabili.  Ég held raunar að raunveruleikinn sé miklu ótrúlegri en það sem ég skrifa í bókinni.  Hann er held ég  alltaf ótrúlegri  en skáldskapurinn.  Við vitum sjálfsagt heldur ekki um nema lítið brot af því sem gerðist í raun og veru og munum örugglega aldrei vita.  Bókin mín er ekki ýktasta formið af hinum raunverulegu  uppátækjum sem áttu sér stað  á árunum fyrir hrun.“

Viðtalið má lesa í heild á Pressunni. Og meira um bókina er að finna hér

INNskráning

Nýskráning