Pétur Gunnarsson mun ríða á vaðið í nýrri fyrirlestraröð á vegum ritlistar og Bókmennta- og listafræðistofnunar. Fyrirlestrarröðin ber heitið Skáldatal og þar munu rithöfundar og skáld ræða það sem brennur á þeim og á þann hátt sem efnið krefst.
Þýðing Péturs Gunnarssonar á meistaraverkinu Regnskógabeltið raunamædda kom út á dögunum og er það lýsandi fyrir Pétur að ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Pétur er þekktur fyrir sína sögulegu yfirsýn og heimspekipælingar og því verður gaman að vita um hvað hann mun tala í Skáldatali.
Skáldatal verður í stofu 102 á Háskólatorgi þann 20. október, kl. 12 – 13.