Norskur gagnýnandi kveðst gjarnan vilja skála í brennivíni við Árna Þórarinsson. Það gerir hann í niðurlagi umfjöllunar sinnar um spennusöguna Tíma nornarinnar sem fær hjá honum fullt hús, svonefnda sexu í blaðinu Fædrelandsvennen, stærsta dagblaðinu í Suður-Noregi sem gefið er út í Kristianssand.
Yfirskrift umfjöllunar Knuts Holt er „Bragðgott íslenskt nornabrugg“ og hann sparar ekki fallegu orðin. „Hér fáum við, ekki á silfurfati heldur norrænni tréfjöl, kjarnyrtan húmor, beinskeitta persónusköpun, skarpar umhverfislýsingar og stígandi spennu – í raun nokkuð skýra mynd af Íslandi fyrir stóra efnahagshrunið,“ skrifar Holt. Hann kennir bókina við skóla hins margfræga Raymond Chandlers og segir hana hnyttna, með skemmtilegum kaldhæðnistón og stælum en þar búi einnig að baki gott næmi fyrir fínni blæbrigðum.
Tími Nornarinnar kemur út hjá forlaginu Bazar í Noregi en bókin hefur þegar komið út í Danmörku, Hollandi, Frakklandi, Þýskaland, Finnlandi, Tékklandi, Póllandi, Grikklandi og hún er væntanleg á Spáni og í Svíþjóð á næstu mánuðum