Sjón

Sjón tilnefndur til virtra verðlauna

Bók Sjóns, Rökkurbýsnir sem ber enska titilinn From the Mouth of the Whale, er tilnefnd til Independent Foreign Fiction Prize í London.

Independent Foreign Fiction Prize eru þekktustu bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsögur þýddar á ensku. Listinn er þar að auki gríðarsterkur að þessu sinni en þar eru meðal annars stórskáld á borð við Umberto Eco, Haruki Murakami, Amos Oz, Peter Nadas og Bernardo Atxaga. Það er því gífurleg vegsemd fyrir Sjón að From the Mouth of the Whale skyldi komast á þennan fína lista.

Independent Foreign Fiction Prize eru veitt til bestu skáldsögunnar, eftir samtímahöfund, sem hefur verið þýdd á ensku og gefin út í Bretlandi.

Hér má lesa nánar um verðlaunin.

INNskráning

Nýskráning