Danski glæpasagnahöfundurinn Jussi Adler-Olsen hefur aldeilis slegið í gegn með bókum sínum um Deild Q, sérdeildina innan dönsku lögreglunnar. Fjórar bækur hafa komið út í seríunni og hafa fengið gífurlega góðar móttökur hjá krimmalesendum víða um heim.
Fyrsta bókin um Deild Q, Konan í búrinu, kom út á íslensku á síðasta ári og í dag kemur bók númer tvö í búðir sem ber heitið Veiðimennirnir. Íslenskir aðdáendur þurfa því að undirbúa sig fyrir hrikalega spennu og taugastríð því að bókin gefur þeirri fyrstu ekkert eftir.
Jussi Adler-Olsen er að verða einn heitasti glæpasagnahöfundurinn í dag og hafa bækur hans átt áskrift að toppsætum vinsældalista m.a. á Norðurlöndunum og í Þýskalandi. Einnig hefur kappinn verið verðlaunaður fyrir bækur sínar. Árið 2011 fékk hann Gullna lárviðarkransinn, ein eftirsóttustu bókmenntaverðlaun Dana, og árið 2010 fékk hann Glerlykilinn, glæpasagnaverðlaun Norðurlandanna.