Í haust er væntanleg ný bók um stóra skrímslið og litla skrímslið eftir Áslaugu Jónsdóttur, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler. Bókin er enn í vinnslu hjá höfundum sínum sem gefa ekkert upp um söguþráðinn en þeir fengust þó til að varpa hulunni af nýjustu persónu bókaflokksins: sjálfum skrímslakisa.
Bækurnar um skrímslin tvö og ævintýri þeirra hafa komið út víða um heim og nýlega komu þær út á fjórum tungumálum bara á Spáni: kastilísku, galisísku, katalónsku og basknesku, enda er heimasíða spænska útgefandans undirlögð af norrænu skrímslunum.
Skrímslakisi verður áttunda bókin í þessari vinsælu bókaröð en áður eru komnar Nei! sagði litla skrímslið, Stór skrímsli gráta ekki, Skrímsli í myrkrinu, Skrímslapest, Skrímsli í heimsókn, Skrímsli á toppnum og Skrímslaerjur.