Í tilefni af útkomu sjöundu bókarinnar um stóra og litla skrímslið, Skrímslaerjur, var haldin skrímslamyndakeppni á bókamessunni í Ráðhúsinu um daginn. Fjöldi mynda barst í keppnina og var úr vöndu að ráða fyrir aðalhöfund bókanna, Áslaugu Jónsdóttur, og starfsmann Forlagsins þegar velja skyldi sigurvegarana þrjá. Að lokum urðu fyrir valinu skrímsli eftir Söru Elísabetu, og Úlf Kjalar, sem bæði eru 6 ára, og Jochum, 4 ára. Foreldrar þessara krakka fá tölvupóst um hvernig nálgast má verðlaunin, fallega áritað eintak af Skrímslaerjum.