Sigurður Karlsson fær fallega kveðju frá Friðriku Benónýsdóttur í Fréttablaðinu í dag fyrir þýðingu sína á dystópíunni Græðaranum eftir Antti Tuomainen sem Forlagið var að gefa út. Hún segir: „Sigurður Karlsson vex með hverri þýðingu og er hér upp á sitt besta með skýran og kjarnyrtan texta sem engin leið er að fetta fingur út í. Finnar hljóta að hrósa happi að hafa í sinni þjónustu svo vandvirkan og vel skrifandi þýðanda og Íslendingar hljóta að hlakka til að fá áfram að kynnast finnskum samtímabókmenntum í gegnum þýðingar hans. “ Sigurður hefur verið ötull og mikilvirkur þýðandi úr finnsku á undanförnum árum. Skemmst er að minnast þess að fyrir jól kom út hjá Uppheimum gríðarmikil bók eftir Tapio Koivukari í þýðingu hans, Ariasman, og fyrir Mál og menningu hefur hann þýtt tvær skáldsögur eftir Sofi Oksanen, verðlaunabókina Hreinsun og Kýr Stalíns, auk Græðarans.
Um Græðarann segir Friðrika: „Hún er heldur nöturleg framtíðarmyndin sem Antti Tuomainen dregur upp í þriðju skáldsögu sinni Græðaranum, sem valin var besta glæpasaga í Finnlandi árið 2011. Sögusviðið er Helsinki í ekki svo fjarlægri framtíð en þó gjörólík þeirri Helsinki sem við þekkjum í dag. Vegna loftslagsbreytinga er stór hluti suðurhvels jarðar óbyggilegur og íbúar flýja norður, meðal annars til Helsinki. Þessum þjóðflutningum fylgja upplausn og óöld, morð, rán og djöfulskapur og lögreglan hefur nánast gefist upp á að takast á við ástandið. Enn er þó verið að rannsaka grimmdarleg morð á auðmönnum og fjölskyldum þeirra og morðinginn hefur hlotið viðurnefnið Græðarinn. Blaðamaðurinn Johanna hefur einnig áhuga á því að komast á slóð Græðarans og leggur ýmislegt í sölurnar. Þegar hún hverfur situr eiginmaður hennar, ljóðskáldið Tapani Lehtinen, uppi með það að enginn virðist hafa áhuga né getu til að komast að því hvað orðið hefur um Jóhönnu og fer því sjálfur á stúfana í leit að henni og um leið auðvitað að lausn morðgátanna. Sagan er þannig allt í senn heimsendissaga, glæpasaga, ádeila á kæruleysi í umhverfismálum og ástarsaga.“ Þessi dreifða áhersla finnst Friðriku draga úr styrk sögunnar en þar kemur annað á móti: „Það sem gerir söguna hins vegar áhugaverðari en margar aðrar norrænar glæpasögur er frásagnarhátturinn og stíllinn. Hvort tveggja gegnsýrt af finnskri svartsýni og gálgahúmor, sem er óneitanlega hressandi. Hér er hvorki bruðlað með orð né tilfinningar og það er textinn sem gerir það að verkum að Græðarinn heldur lesandanum við efnið … Ýmsar aukapersónur eru líka bráðvel dregnar og eru þar minnisstæðastir lögregluvarðstjórinn Jaatinen og leigubílstjórinn Hamid.“