Sýningum á Fólkinu í kjallaranum í Borgarleikhúsinu lýkur um miðjan október. Sýningin hlaut alls níu tilnefningar til Grímuverðlauna á síðasta leikári og hefur verið fjallað um hana sem mannlega og hrífandi sýningu sem lætur engan ósnortinn.
Leikritið byggir á samnefndri verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur, sem er mögnuð, grátbrosleg fjölskyldusaga en um leið uppgjör við ’68 kynslóðina og venjubundnar hugmyndir um lífið og tilveruna.
Auður Jónsdóttir hefur verið í flokki fremstu rithöfunda þjóðarinnar síðustu ár. Fólkið í kjallaranum kom út árið 2004 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin það ár og var síðar tilnefnd til Bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs. Síðan hefur bókin verið þýdd á fjölda tungumála og hlotið frábæra dóma víða um heim. Auður Jónsdóttir var fyrsta fastráðna leikskáld Borgarleikhússins og vinnur nú að ritun leikverks fyrir leikhúsið.