höfundar

Síðustu konfektmolarnir …

Nú er komið að lokum upplestrarkvölda Forlagsins undir yfirskriftinni Bókakonfekt að sinni. Fjórða Bókakonfektið fer fram á Café Rosenberg næstkomandi sunnudagskvöld, 20. nóvember, og hefst kl. 20.30.

Sem fyrr les flokkur úrvalshöfunda úr nýútkomnum bókum. Þetta eru: Eva María Jónsdóttir og Óskar Jónasson sem lesa úr Dans vil ég heyra, Jón Yngvi Jóhannsson úr Landnámi – Ævisögu Gunnars Gunnarssonar, Guðmundur Andri Thorsson úr Valeyrarvalsinum og Vigdís Grímsdóttir úr Trúir þú á töfra? Guðrún Pétursdóttir, Ólafur Hannibalsson og Herdís Egilsdóttir lesa úr bókinni Sólarmegin, Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir og Jakob Frímann Magnússon úr Með sumt á hreinu og Þorleifur Hauksson og Vilborg Dagbjartsdóttir úr bókinni Úr þagnarhyl.

Bókakonfektið hefur kætt geð margra á undanförnum vikum og enginn ætti að láta þessa síðustu mola úr greipum ganga — hægt er að lofa hnossgæti fyrir munn og eyru, aðgangur er sem fyrr ókeypis og fyrstu hundrað gestirnir fá frían drykk.

INNskráning

Nýskráning