Siðblint ljúfmenni og auðmjúkur fantur

„Meistaraverk“
The Times

„Sagan er gráglettin og gamanið oft verulega kaldranalegt. Bókin er glæsilega skrifuð.“ Árni Matthíasson / Morgunblaðið

Booker-verðlaunin 2008

Balram Halwai er frumkvöðull, þjónn, hugsuður og morðingi – í senn siðblint ljúfmenni og auðmjúkur fantur. Hann brýst úr fjötrum þorpsins sem ól hann og fjölskyldunnar sem kúgaði hann til þess eins að lenda undir hælum annarra þrælahaldara í stórborginni. En Balram er frábrugðinn hundruðum milljóna undirokaðra landa sinna: hann velur sér nýtt líf, þar sem hann er sjálfur sá sem mútar, kúgar og græðir.

Hvíti Tígurinn er snilldarlega skrifuð saga um napran veruleika Indlands, saga um spillingu, örbirgð, kúgun, stéttaskiptingu og viðurstyggð sem viðgengst jafnt meðal fátækra og ríkra. Uppreisnarmaðurinn Balram játar opinskátt bresti sína og brot í háðskri frásögn sem um leið er bæði heillandi og sláandi.

Aravind Adiga hlaut hin heimsþekktu Booker-verðlaun 2008 fyrir bókina sem hefur komið út víða um heim við miklar vinsældir.

Ísak Harðarson þýddi.

„Þetta er æsileg lesning, krassandi og kaldhæðin … Söguhetjan, Balram, er kannski samviskulaus þrjótur, en það er ekki hægt að hafa annað en samúð með viðleitni hans til að brjótast út úr þessum hryllingi, úr myrkrinu í ljósið.“
Egill Helgason / eyjan.is

„Frábær frumraun … Stórkostlegur sögumaður.“
Frankfurter Allgemeine Zeitung

„Djörf, beisk, háðsk, andstyggileg og hrikalega girnileg.“
The Times of India

INNskráning

Nýskráning