Bækur Lizu Marklund hafa notið fádæma vinsælda á Íslandi en nú er komið að endalokunum flokksins.
Síðasta bókin í bókaröðinni um hina óviðjafnanlegu Anniku Bengtzon er komin út og ber titilinn Járnblóð. Hamingjuvegur, sem kom út í fyrra, var ein mest selda glæpasaga ársins í fyrra og náði í efsta sæti metsölulista Eymundsson nokkrum sinnum.
Annika, hjálpaðu mér!
Þessi sms-skilaboð eru síðasta lífsmarkið sem komið hefur frá Birgittu, systur Anniku Bengtzon. Annika þarf að finna hana og sú leit knýr hana til að horfast í augu við erfiða reynslu úr eigin fortíð. Framtíðin er líka óviss því að Kvöldblaðið stendur á krossgötum. En meðan á öllu þessu gengur flytur Annika fréttir af óútkljáðu dómsmáli vegna óhugnanlegra morða og einhvers staðar er á sveimi sálsjúkur morðingi sem hugsar henni þegjandi þörfina.
Bækur Lizu Marklund um blaðakonuna Anniku Bengtzon hafa komið út á yfir 30 tungumálum og notið gríðarlegra vinsælda um allan heim