Sexfaldar hamingjuóskir

Rithöfundarnir Vilborg Davíðsdóttir, Árni Heimir Ingólfsson og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hlutu í gær tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna ásamt fleirum. Tilkynnt var um tilnefningarnar við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands. Vilborg hlýtur tilnefningu fyrir skáldsögu sína Auði, þar sem hún segir frá viðburðaríku tímabili í sögu landnemans Auðar djúpúðgu, Árni Heimir Ingólfsson er tilnefndur fyrir ævisöguna um tónskáldið Jón Leifs og Þórdís Elva fyrir rómaða bók sína Á mannamáli sem fjallar um kynbundið ofbeldi á Íslandi.

Einnig var tilkynnt um tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna í gær og hlutu bækur Forlagsins þrjár slíkar. Kristján Árnason er tilnefndur fyrir þýðingu sína á meistaraverki Óvíds, Ummyndunum,  en bók sú kemur út hjá Máli og menningu, María Rán Guðjónsdóttir er tilnefnd fyrir þýðingu sína á Kirkju hafsins sem kemur út hjá JPV og Guðbergur Bergsson er tilnefndur fyrir ljóðasafn sitt, Öll dagsins glóð, er geymir úrvalsþýðingar hans á portúgalskri ljóðlist.





INNskráning

Nýskráning