Höfundar skrímslabókanna ásamt stóra skrímslinu og litla skrímslinu

Sex stjörnu skrímslaskemmtun


Bækurnar um stóra og litla skrímslið eru óðum að koma út í Noregi og sú nýjasta þar, Skrímslapest, fékk á dögunum sex stjörnu dóm í Litteraturavisen. Þar sagði Siri Pedersen: „Textinn er góður, myndirnar eru enn betri. Þegar á heildina er litið er Skrímslapest skrímslagóð bók, bæði fyrir litla og stóra.“
Fleiri gagnrýnendur hafa heillast af bókum Áslaugar Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal í Noregi en tvær þeirra komu út þar í landi á síðasta ári og tvær nú í haust.
Hér er útgáfan komin öllu lengra því sjöunda bókin er nýkomin í verslanir. Sú heitir Skrímslaerjur og segir frá því þegar skrímslunum lendir saman. Það er líka skrímslaskemmtilegt!



INNskráning

Nýskráning