DV birtir í dag lista yfir alla þá sem tilnefndir eru til Menningarverðlauna blaðsins en þau verða veitt á miðvikudaginn kemur. Það er Forlaginu mikill heiður að eiga sex af ellefu bókum sem tilnefndar eru til verðlauna í flokki fagurbókmennta og fræða. Í bókmenntaflokki eru Ósjálfrátt eftir Auði Jónsdóttur, sem hlaut Fjöruverðlaunin fyrir skemmstu, Siglingin um síkin eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur, Reykjavíkurnætur eftir Arnald Indriðason og Sjóræninginn eftir Jón Gnarr. Í flokki fræða eru þeir Jón Ólafsson og Gunnar Þór Bjarnason tilnefndir, Jón fyrir Appelsínur frá Abkasíu, sem nýlega hlaut viðurkenningu Hagþenkis, og Gunnar Þór fyrir Upp með fánann.
Í bókmenntanefndinni sátu Hrafn Jökulsson formaður, Þóra Sigríður Ingólfsdóttir og Þórarinn Baldur Þórarinsson en í fræðanefndinni voru Ragnheiður Gyða Jónsdóttir, Árni Daníel Júlíusson og Þórhallur Eyþórsson.