Í síðustu viku var Stefán Máni spurður spjörunum úr af lesendum sínum. Næst í yfirheyrslu hjá Spyr.is er Kristín Marja Baldursdóttir.
Kristín Marja hefur verið í hópi helstu rithöfunda okkar frá því hún sendi frá sér sína fyrstu bók, Mávahlátur, sem var bæði sett á svið og kvikmynduð, og ógleymanlegar sögur hennar um listakonuna Karitas eiga sér ótal aðdáendur. Bækur Kristínar Marju hafa komið út víða um lönd og hlotið frábærar móttökur erlendis rétt eins og hér heima.
Kantata er ný skáldsaga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur þar sem segir frá hópi fólks sem þekkist vel og er tengt fjölskylduböndum. Í stórfjölskyldunni er allt í föstum skorðum og yfirborðið kyrrt. En þegar hægláti útlendingurinn birtist á sviðinu með myndavélina sína breytist allt …
Við hvetjum lesendur til að senda inn spurningu og svo um helgina verða svör Kristínar Marju birt í viðtalsformi.