Sendingarmáti
Innanlands sendum við vöruna með pósti innan þriggja virkra daga. Við sendum líka pantanir til útlanda en þá lengist afhendingartíminn eftir því til hvaða lands sendingin á að fara.
Rafbækur eru afgreiddar strax að lokinni pöntun og greiðslu. Kaupandinn fær þá sendan tölvupóst með hlekk sem vísar á vöruna. Ef hlekkurinn berst ekki strax gæti hann hafa lent í ruslhólfinu (junkmail) í póstforritinu.
Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Forlagið ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send úr vefverslun Forlagsins og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.