Sandmaðurinn

Sandmaðurinn er syndsamlega spennandi

Sandmaðurinn, nýjasta afurð Lars Keplers (dulnefni hjónanna Alexöndru og Alexanders Ahndoril), hefur hlotið fádæma viðtökur á Norðurlöndunum en bókin kom út þar rétt fyrir jólin.

Bókin fór beint á topp metsölulista í Svíþjóð, Danmörku og Noregi og hefur rokselst þar allt frá útgáfu. Í Svíþjóð hafa selst tæplega 500.000 eintök en þar sat bókin í efsta sæti metsölulista í rúman mánuð og í Danmörku seldust yfir 20.000 eintök fyrstu vikuna.

Sandmaðurinn kom í síðustu viku út í íslenskri þýðingu Jóns Daníelssonar og er óhætt að segja að töluverð eftirvænting hafi verið eftir henni enda á Lars Keplers marga dygga lesendur hér á landi. Sandmaðurinn veldur svo sannarlega ekki vonbrigðum en hér er á ferðinni syndsamlega spennandi bók sem fær hárin til að rísa.

INNskráning

Nýskráning