Davíð Stefánsson

Samið um útgáfu á verkum Davíðs

Verk ljóðskáldsins Davíðs Stefánsssonar hafa verið ófáanleg um árabil en brátt verður breyting þar á. Nú hefur verið gengið frá samningi við erfingja Davíðs og mun Forlagið sinna útgáfu verka hans á næstu árum. Fyrsta verkefnið á þeirri dagskrá verður nýtt ljóðaúrval úr smiðju hans sem koma mun út á næsta ári. Einnig er stefnt að því að gefa út ljóðabókina Svartar fjaðrir á vegum Klassíska kiljuklúbbsins á næstu misserum.






Á myndinni hér til hliðar eru Þóra Stefánsdóttir, bróðurdóttir Davíðs, og dóttir hennar Anna Dóra ásamt Sif Jóhannsdóttur sem undirritaði samninginn fyrir hönd Forlagsins.









INNskráning

Nýskráning