Bækur Guðrúnar Helgadóttur halda áfram að skemmta börnum um allan heim. Nýverið kom Ástarsaga úr fjöllunum út í Eistlandi og Slóveníu og um þessar mundir kemur bókin Bara gaman út í Þýskalandi. Ástarsaga úr fjöllunum hefur auk Eistlands, Slóveníu og Íslands komið út í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum, Bandaríkjunum, Japan, Kóreu og Ítalíu. Ennfremur gaf Mál og menning bókina út á þýsku, ensku og frönsku.
Þýska útgáfan á Bara gaman er hins vegar fyrsta erlenda útgáfa bókarinnar en hún kemur út hjá forlaginu Dressler, forlagi innan vébanda forlagsrisans Oetinger, undir titlinum Blaubeeren und Vanilleeis, í þýðingu Aniku Lüders-Wolff. Myndskreytingar voru í höndum Leonard Erlbruch en til gamans má geta þess að hann er sonur hins heimsfræga teiknara Wolf Erlbruch sem m.a. teiknaði myndirnar í bókina Moldvarpan sem vildi vita hver skeit á hausinn á henni, og kom út hjá Forlaginu fyrir nokkrum árum. Dressler veðjar á gott gengi bókarinnar og kynnir hana sem „dásamlega fjölskyldusögu barmafulla af væntumþykju og kímni í anda norrænnar frásagnarhefðar í fremstu röð“. Hefur þýskur útgáfustjóri Guðrúnar, Eva Jaeschke, lagt hart að henni að skrifa framhald bókarinnar og eru allar líkur til þess að Guðrún töfri fram úr erminni aðra bók fyrir haustið.
Bara gaman kom út hjá Máli og menningu árið 2008. Bókin er fjörug fjölskyldusaga og fjallar um lífið í Bakkabæ sem er algjörlega eins og það á að vera. Tumi hefur reyndar áhyggjur af því að mamma eigi engan mann og Vildís systir hans vildi gjarna að hún ætti svolítið meiri peninga. En Vala litla hefur ekki áhyggjur af neinu og heldur ekki mamma. Hún hamast á vinnustofunni sinni og hefur ekki hugmynd um að það vanti mann í húsið. Lesendum býðst að dvelja sumarlangt með fjölskyldunni á Bakkabæ og það er bara gaman!
* * * *
„Ég held að Guðrún Helgadóttir geti allt nema skrifað leiðinlegar barnabækur. … Bara gaman stendur við það sem titillinn lofar, það er bara gaman að lesa þessa bók.“
Helga Magnúsdóttir / DV