Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og Áslaugu Jónsdóttur, í þýðingu Julians Meldons D-Arcy, hlaut í gær UKLA-verðlaunin í flokki bóka fyrir lesendur á aldrinum 7 til 11 ára og er fyrsta þýdda bókin til að hreppa þessi virtu verðlaun sem veitt eru árlega af breskum kennurum. Í umsögn dómnefndar segir: „Sagan af bláa hnettinum er frumlegt ævintýri sem mun höfða til aðdáenda Maurice Sendak, Dr. Seuss og Hans Christian Andersen.“ Og einn dómnefndarmanna, Jane Steel, hafði þetta að segja um reynslu sína af sögunni:
„Sagan af bláa hnettinum lifnar við þegar hún er lesin fyrir heilan bekk af börnum sem finnst hugmyndin um stað það sem einungis búa börn, sem lifa saman í friði og skemmta sér konunglega, alveg frábær … Eftirvænting, hlátur og fjölmargar spurningar fylgja hverjum kafla í þessari bók sem krakkar á aldrinum 7 til 11 ára njóta með ólíkum hætti og örvar umræður um siðferði, heimspeki og náttúruvernd. Mér fannst frábært að lesa hana upphátt og það mátti heyra saumnál detta í skólastofunni. Einn strákurinn sagði: „Viltu lesa í allan dag?“
UKLA stendur fyrir The United Kingdom Literacy Association og er markmið verðlaunanna að benda kennurum á vandaðar bókmenntir fyrir börn sem eiga erindi inn í skólastofuna. Um verðlaunin í ár sagði Alayne Öztürk, forseti UKLA: „Það hversu góðar tilnefndu bækurnar í ár voru og verðlaunahafarnir, sem allir eru framúrskarandi, sýnir að það leynast fjársjóðir meðal útgáfubóka lítilla útgefenda og það er sérstaklega ánægjulegt að hafa í hópnum erlenda höfunda og teiknara nú þegar verðlaunin eru veitt í fimmtugasta sinn.“