Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir

Saga sem daðrar við lesandann

Skáldsagan Mörg eru ljónsins eyru hlýtur fjórar stjörnur í umfjöllun Fréttablaðsins í dag. Segir þar meðal annars: „Eins og endranær hjá Þórunni er það þó stíllinn sem lyftir þessari sögu hátt yfir flestar aðrar íslenskar sakamálasögur … textinn morar líka í óhemjufallegum setningum og erótískum undirtónum, heimspekilegum hugleiðingum og hártogunum. Einhver orðaði það svo að textinn daðraði við lesandann og það má til sanns vegar færa. Og það daður svínvirkar. Maður fyllist næstum því söknuði þegar bókin endar og klippt er á orðahringiðuna sem haft hefur mann á valdi sínu meðan á lestri stóð.“ Rýnirinn Friðrika Benónýsdóttir virðist skínandi kát með lesturinn – það erum við líka.

INNskráning

Nýskráning