Nýja barnabókin hans Jakobs Martins Strid, Ótrúleg saga um risastóra peru, fær fimm hjörtu af sex mögulegum í gagnrýni Steffens Larsen í Politiken sem segir í yfirskrift: „Ætli Strid sé ekki í eilífum meðvindi þessa dagana?“ Þar vísar hann til þess að allt sem þessi fjölhæfi rithöfundur og teiknari sendir frá sér nýtur mikilla og vinsælda og hann er einn þeirra sem oft er orðaður við virtustu barnabókaverðlaun heims, Astrid Lindgren-verðlaunin. Enda urðu útgefendur um allan heim óðir og uppvægir þegar fréttist að Strid ynni að hundrað síðna myndskreyttu ævintýri um týndan borgarstjóra, risastóra peru og ævintýralega siglingu til dularfullrar eyjar og sumir keyptu útgáfuréttinn á henni jafnvel án þess að skoða hana fyrst!
Fulltrúar Forlagsins fengu að skoða bókina á bókasýningunni í Frankfurt í haust og féllu strax fyrir henni. Þegar heim var komið féllst þýðandi Reisubókar Gúllívers og Andrésar andar, Jón St. Kristjánsson, á að snúa texta Jakobs Martin Strid á íslensku og gerði það auðvitað snilldarlega.
„Ótrúleg saga um risastóra peru er efnismikil, safarík og full af smáatriðum … Saga sem mettar og gleður,“ segir Steffen Larsen að lokum um bókina í Politiken.
Ein bók eftir Jakob Martin Strid hefur áður komið út á íslensku, Í búðinni hans Mústafa í þýðingu Friðriks H. Ólafssonar, en Forlagið kynnir nú með stolti Ótrúlega sögu um risastóra peru. Góða skemmtun!