Jónína heimsækir Bókadeildina

Saga Jónínu kemur út á færeysku

Fjölmiðlar fjalla nú töluvert um opinbera heimsókn Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur til Færeyja. Færri vita að Jónína heimsótti færeyska forlagsið Bókadeildina á dögunum þar sem saga eftir hana er um það bil að koma út á bók. Þetta er smásagnasafnið Elskar, elskar ikki, þar sem Jónína á samnefnda sögu. Bókin kemur út á átta norðurlandamálum síðar í mánuðinum en þar er að finna smásögur sextán norrænna höfunda sem allir skrifa um ástina.

Á myndinni sést Jónína með fyrsta eintakið af bókinni, í fylgd færeyska útgefandans, Niels Jákup Thomsem, og Ásu Baldvinsdóttur, eiginkonu íslenska sendiherrans í Færeyjum.

Bókin með sögu Jónínu kemur vitanlega út á íslensku líka og ber titilinn Elskar mig, elskar mig ekki.





INNskráning

Nýskráning