Ingi Freyr Vilhjálmsson skrifaði langan og ítarlegan ritdóm um ævisögu Svavars Gerstssonar, Hreint út sagt, í DV í vikunni sem leið og segir þar að bókin lýsi lífshlaupi „sem hlýtur að teljast áhugavert og viðburðaríkt. … Þetta er vegleg bók, yfirleitt er hún skemmtileg aflestrar og þægileg, á henni er spjallstíll sem rennur ljúflega áfram … Hann er ekki bitur eða reiður; hjólar ekki í neinn og fer frekar mjúkum höndum um samferðamenn sína, bæði samherja og pólitíska andstæðinga – það er helst að gremja skíni í gegn þegar Ólafur Ragnar Grímsson og Davíð Oddsson koma til tals enda umdeildir menn sem Svavar glímdi við.“
Ingi Freyr bendir á að sjálfsævisögur þurfi að lesa með vissum fyrirvara þegar kemur að túlkunum höfundarins á sögunni, sérstaklega málum sem tengjast honum beint. En að mati Inga verður Svavar ekki sakaður um það í bókinni að vera óheiðarlegur í nálgunum sínum … „þetta er ekki dýrlingasaga eða hvítþvottarbók í þeim skilningi að hann reyni að endurskrifa söguna sér í hag og jafnvel ljúga, líkt og stundum vill verða um slíkar bækur stjórnmálamanna.
Vitanlega er frásögn Svavars án vafa valkvæð; hann staldrar ekki of lengi við mál sem gætu komið sér illa fyrir hann eða líta kjánalega út í baksýnisspeglinum. Þeir sem þekkja vel til einstakra þjóðmála sem Svavar fjallar um munu án efa sjá dæmi um þessa valkvæðni í bók Svavars.“ Að dómi Inga Freys snúast áhugaverðustu kaflar bókarinnar ekki um pólítískan feril Svavars heldur um æsku hans. „Þar er Svavar afar einlægur og segir opinskátt frá. … Eitt af því sem er áhugavert við æsku Svavars, sem fæddist í torfbæ árið 1944, er að hann segist hafa séð inn í þrjár aldir: Svavar er það gamall að hann átti náin skyldmenni sem fædd voru á nítjándu öldinni sem hann átti í nánu samneyti við í sveitinni, hann tók þátt í þjóðmálaumræðunni og pólítísku starfi á Íslandi lungann úr seinni hluta tuttugustu aldarinnar og varð sendiherra í lok hennar og út fyrsta áratug tuttugustu. Meira að segja Svavar Gestsson, sem þó er ekki eldri en rétt tæplega sjötugur, fékk þennan smjörþef af Íslandi eins og það var um aldir, miðaldasamfélaginu, í gegnum þessa ættingja sína, og prófaði sjálfur hvernig það var að búa í lélegum húsakynnum til sveita þar sem var kalt og ekkert rennandi vatn. Þetta hark foreldra hans lagðist þungt á Svavar sem barn og eftir að hann flutti úr sveitinni í borgina og áttaði sig á því hversu atlætið í sveitinni hafði verið slæmt, þá fann hann til með systkinum sínum. Ekki er skrítið að maður með þennan félagslega bakgrunn hafi hneigst til sósíalisma á unga aldri: Svavar var langt í frá forréttindamaður heldur þurfti hann að berjast fyrir sínu.“