Átt þú hina stórskemmtilegu, undurfurðulegu, stoppfullu og ærslafengnu Heimsmetabók Guinness fyrir árið 2010? Ef svo er þá máttu alls ekki gleyma að sækja „metið á netið“. Í bókinni þinni er kóði sem veitir þér aðgang að skemmtilegri heimasíðu þar sem finna má fjölbreytt ítarefni sem tengist heimsmetunum í bókinni. Þú ferð einfaldlega inn á heimasíðuna www.guinnessworldrecords.com/2010 og slærð þar inn talnaröðina sem finna má á síðu 6 (mundu bara að merkja við rétt tungumál!). Svo getur þú vafrað að vild, sótt þér skjásvæfu, tekið þátt í spurningaleik eða bara fræðst eins og vindurinn um allt mögulegt sem tengist heimsmetum Guinness.